Follow me on social media
Icelandic Contemporary Art
  • About
  • Copenhagen 2022
  • Current work
  • CV & Exhibitions
  • Art
    • Jólaboð 2021
    • Sýning 2020
    • Jólaboð 2019
    • Exhibition 2017
    • Paintings 2014
    • Paintings 2012
    • Sýning í Grindavík
    • Older paintings
    • Exhibition - Duus in Iceland
    • Culture Night in Copenhagen
    • Exhibitions
  • Blog
  • Contact

Blossi - Duus Safnahús í Reykjanesbæ

25/8/2017

0 Comments

 
Picture
Sýningin Blossi verður opnuð á Ljósanótt í Bíósal Duus Safnahúsa í Reykjanesbæ 31. ágúst og stendur til 15. október. Á sýningunni eru málverk eftir Sossu og innrömmuð ljóð eftir Anton Helga Jónsson sem snúast um ástar- og hlutverkaleiki kynjanna.

Sossa og Anton Helgi Jónsson eiga það sameiginlegt að hafa bæði velt fyrir sér margbreytileika mannlífsins, hún í málverkum og hann í ljóðum. Með bros á vör og lífsgleðina að leiðarljósi hafa þau dregið upp myndir af alls konar fólki í verkum sínum.

Blossi er samsýning þeirra á málverkum og ljóðum sem snúast um ástar- og hlutverkaleiki kynjanna.Sossa hefur áður málað myndir út frá ljóðum úr bókum Antons en málverkin á þessari sýningu urðu til eftir að listamennirnir ákváðu að vinna saman að sýningu með erótískum undirtóni.

Efniviðinn í málverkin hefur Sossa sótt í ljóð eftir Anton sem fæst hafa komið fyrir augu annarra og sum reyndar orðið til upp úr samstarfi þeirra.Málverkin eru ekki hugsuð sem myndskreyting við ljóðin heldur verk sem sprottin eru af sama eða svipuðum blossa. Þannig vilja listamennirnir láta reyna á það hvernig málverk og ljóð geta hvort á sinn hátt miðlað heitum tilfinningum; ástarblossa milli karls og konu, karls og karls, konu og konu.
​
Hverju miðlar málverkið? Hverju miðlar ljóðið? Hvað er mynd í ljóði? Hvað er ljóð í mynd?

0 Comments



Leave a Reply.

    Sossa's Blog

    Here you can find latest news and blog about my art, life and current exhibitions.

    Archives

    April 2022
    December 2021
    August 2020
    November 2019
    March 2019
    November 2018
    November 2017
    August 2017
    December 2015
    August 2015
    November 2014
    August 2014
    June 2014
    May 2014
    March 2014

    Categories

    All
    Art
    Exhibition
    Málverkasýning
    Menningarvika í Grindavík

    RSS Feed


Picture
Contact me at sossa@sossa.is and make sure to 
like my facebook page for regular updates about 
events, exhibitions and art work